Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. september 2014 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Malouda segist ekki vera á leið til Birmingham
Malouda er ekki á leið til Birmingham.
Malouda er ekki á leið til Birmingham.
Mynd: Getty Images
Florent Malouda, fyrrum kantmaður Chelsea, segir ekkert til í orðrómum þess efnis að hann sé á leið til Birmingham.

Malouda er án félags eftir að hafa yfirgefið Trabzonspor í Tyrklandi í síðustu viku og var því haldið fram að Lee Clarke vildi fá hann til Birmingham.

,,Sá aðra sögu þar sem verið er að orða mig við félag í Championship. Ég þekki engan Lee Clark. Hlýtur að vera eftirstöðvar af ísfötuáskoruninni," skrifaði Malouda á Twitter.

Malouda var í sex ár hjá Chelsea og vann ensku úrvalsdeildina árið 2010 og Meistaradeildina 2012.
Athugasemdir
banner
banner
banner