Marco Reus verður ekki með Borussia Dortmund gegn Arsenal í Meistaradeildinni í næstu viku. Hann meiddist á ökkla í 2-1 sigri Þýskalands gegn Skotlandi.
Meiðslin elta þennan hæfileikaríka leikmann en hann missti af HM í sumar einmitt vegna ökklameiðsla.
Meiðslin elta þennan hæfileikaríka leikmann en hann missti af HM í sumar einmitt vegna ökklameiðsla.
Reus verður frá í fjórar vikur
Borussia Dortmund varð í öðru sæti í Meistaradeildinni 2013 en liðið leikur við Arsenal í fyrsta leik sínum í keppninni þetta tímabilið en leikurinn verður í Þýskalandi eftir viku.
Liðin leika í D-riðli ásamt Galatasaray og Anderlecht.
Athugasemdir