,,Þetta var bara meiriháttar leikur, ótrúlega góður frá upphafi til enda. Þeir hafa greinilega nýtt þessa viku sem þeir tóku hérna í að sleppa æfingaleikjum og kortlagt Tyrkina ótrúlega vel og sett þennan leik upp frábærlega, þetta var bara æði," sagði Sigurbjörn í samtali við Fótbolta.net.
,,Ég bjóst ekki við Jón Daða í liðinu og hann kom meiriháttar inn í þennan leik, hann og Gylfi fannst mér vera frábærir í dag, einnig Ari Skúla í vinstri bakverðinum, Tyrkirnir reyndu að fara á hann, en það var allt lokað. Mér fannst Jón Daði koma gríðarlega á óvart í þessum leik, ég vissi að þetta væri góður leikmaður en hann sýndi ótrúlega hluti í dag."
,,Mér fannst við eiga þessa miðju klárlega í dag, þegar Gylfi fékk boltann var hann svo öruggur á honum, það greinilega skín af honum allt sjálfstraust og geta og kraftur. Hann var frábær í dag."
Arda Türan var ekki mikið að stíga í sviðsljósið í leiknum í dag. ,,Hann átti eina sendingu í seinni hálfleik og þá sá maður hvað þessi gaur getur. En hann var ekki sérstakur í dag, ekki frekar en Tyrkirnir, við bara tókum þá í nefið."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir