,,Sigur var það eina sem kom til greina í dag og það gekk upp. Það var ekkert gefið fyrir leikinn að við myndum taka þá 3-0. Ég bjóst við þeim sterkari en við áttum allan frábæran dag og það gekk allt upp hjá okkur."
Emil var mættur aftur á vinstri kantinn í dag eftir að hafa leikið á miðjunni með landsliðinu undanfarin ár.
,,Þetta er ný og gömul staða þannig séð. Ég reyni að gera mitt besta þar sem landsliðsþjálfararnir vilja að ég spila. Mér fannst þetta ganga nokkuð vel í dag. Ég reyni að leggja mig fram í hverjum einasta landsleik og njóta þess."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir