Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 09. september 2014 22:18
Alexander Freyr Tamimi
Geir fékk drauma-afmælisdag
Geir í góðra vina hópi.
Geir í góðra vina hópi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fagnaði í dag fimmtugsafmæli sínu og gat afmælisdagurinn varla verið betri.

Geir sagði á Twitter í gær að hann dreymdi um að fá sigur Íslands gegn Tyrklandi og að U21 landsliðið kæmist áfram í umspil í undankeppni EM 2015.

Geir fékk báðar óskir sínar uppfylltar á stórafmælinu og er því væntanlega afar sáttur.

Ísland vann frábæran 3-0 sigur gegn Tyrklandi í fyrsta leik í undankeppni EM og þökk sé öðrum úrslitum fóru strákarnir í U21 landsliðinu í undankeppni EM U21 landsliða.
Athugasemdir
banner
banner