Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 09. september 2014 21:32
Alexander Freyr Tamimi
Hannes: Keyrðum yfir þá frá fyrstu mínútu
Hannes var að vonum ánægður með sigurinn.
Hannes var að vonum ánægður með sigurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður, var að vonum hæstánægður með 3-0 sigur Íslands gegn Tyrklandi í fyrsta leik í undankeppni EM 2016 í kvöld.

Tyrkir áttu ekki séns í íslenska liðið á Laugardalsvelli í kvöld og var Hannes að vonum ánægður með þennan frábæra sigur.

,,Algjör draumabyrjun. Þetta er eitthvað sem maður hefði varla þorað að vonast eftir eða láta sig dreyma um. Við komum bara ótrúlega vel stemmdir í þennan leik og við gáfum þeim aldrei séns. Við keyrðum yfir þá frá fyrstu mínútu, þetta var bara glæsileg liðsframmistaða," sagði Hannes.

,,Maður hefði ekki giskað á þetta fyrir leik, ég átti von á mjög jöfnum leik sem myndi ráðast á einu marki öðru hvoru megin. En við sýndum sjálfum okkur það að á góðum degi getum við verið alveg frábærir og það er gott að vita að við getum spilað svona leik þegar við hittum á daginn okkar."
Athugasemdir
banner
banner
banner