Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 09. september 2014 22:10
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn: Frábært að spila með Jóni Daða
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Kolbeinn Sigþórsson, sóknarmaður Íslands, skoraði þriðja markið í mögnuðum 3-0 sigri gegn Tyrklandi í undankeppni EM.

„Þetta var frábær leikur hjá öllu liðinu. Við náðum einum besta leik Íslands frá upphafi og lékum vel allan leikinn. Við vorum með stjórnina allan leikinn og sigurinn hefði getað verið stærri. Skipulagið var frábært og varnarlega komust þeir ekki í gegnum okkur. Þetta er hrós á þjálfarateymið," sagði Kolbeinn eftir leik.

Kolbeinn heldur áfram að skora í landsleikjum. „Ég leita eftir því í hverjum leik að skora og það er gaman að eiga þetta marka-record fyrir Ísland."

Kolbeinn lék með nýjum manni í fremstu víglínu, Jóni Daða Böðvarssyni sem átti stórleik.

„Hann kom frábærlega inn í þetta og varðist vel. Sóknarlega var hann að halda boltanum vel og var alltaf í kringum mig. Það var frábært að spila með honum. Hann nýtti tækifærið fullkomlega."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner