Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. september 2014 19:30
Alexander Freyr Tamimi
Vertonghen að fá nýjan samning hjá Tottenham
Vertonghen gæti gert nýjan samning við Spurs.
Vertonghen gæti gert nýjan samning við Spurs.
Mynd: Getty Images
Jan Vertonghen, varnarmaður Tottenham, er nálægt því að fá nýjan samning við félagið samkvæmt umboðsmanni hans Mustapha Nakhli.

Knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino vill gjarna binda belgíska landsliðsmanninn við Lundúnaliðið til lengri tíma, en Vertonghen hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona.

Umboðsmaður hans segir þó að miðvörðurinn sé ánægður hjá Tottenham og sé tilbúinn að skrifa undir nýjan samning.

Framtíð hans gæti þó oltið á því hvort að Tottenham nær topp fjórum á þessu tímabili eður ei.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner