Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í öðrum flokki karla fyrr í kvöld.
Blikar töpuðu 1-0 á heimavelli gegn ÍA en á sama tíma gerðu FH og Haukar 3-3 jafntefli.
Það þýðir að FH, í 2. sætinu, getur ekki náð Blikum en fjögur stig skilja liðin að þegar ein umferð er eftir.
Blikar töpuðu 1-0 á heimavelli gegn ÍA en á sama tíma gerðu FH og Haukar 3-3 jafntefli.
Það þýðir að FH, í 2. sætinu, getur ekki náð Blikum en fjögur stig skilja liðin að þegar ein umferð er eftir.
Þjálfarar Breiðabliks eru gömlu kempurnar Dean Martin, Páll Einarsson og Stefán Gíslason en samanlagt eiga þeir yfir 1000 meistaraflokksleiki að baki.
Hér að neðan má sjá fagnaðarlæti Blika eftir sigurinn í kvöld.
hvað erum við.... ÍSLANDSMEISTARAR
Posted by Raggi Óla on Wednesday, September 9, 2015
Athugasemdir