„Tilfinningin er mjög góð, ég er kominn heim," segir varnarmaðurinn Indriði Sigurðsson sem í dag var kynntur sem nýr leikmaður KR. Indriði er kominn aftur í sitt uppeldisfélag eftir að hafa leikið í atvinnumennsku síðan 1999. Hann kemur frá Viking í Noregi.
„Ég verð að gera jafnvel og þegar ég var seinast, þá unnum við tvöfalt. Verðum við ekki að halda þeim dampi áfram? Ég er mjög spenntur. Maður hefur séð svo marga koma heim og verið í bölvuðu veseni og endað þetta frekar illa. Ef maður kemur heim þá verður maður að gera það almennilega."
„Það er alltaf krafa hjá KR að ná titlum og það þekkir maður sjálfur frá blautu barnsbeini þegar maður var á áhorfendapöllunum og fólk kvartaði yfir því að við hefðum ekki unnið í fjöldamörg ár."
„Ég mun koma til með að gera mitt besta og leggja mig 100% fram, annars væri ég ekki hér. Síðustu þrjú árin eru kannski mín bestu á ferlinum, ég hef verið eins og gott rauðvín og orðið betri og betri. Vonandi heldur það áfram."
Viðtalið má sjá í heild hér að ofan en þar talar hann meðal annars um síðustu leiki sína í Noregi, tímabilið þar er ekki á enda komið.
Athugasemdir