Robert Lewandowski, framherji FC Bayern, er í miklu stuði þessa dagana. Lewandowski hefur skorað samanlagt 14 mörk í síðustu fimm leikjum með Bayern og pólska landsliðinu.
Á dögunum skoraði Lewandowski fimm mörk á níu mínútum með Bayern gegn Wolfsburg og hann hélt áfram í gær þegar hann skoraði bæði mörk Pólverja í 2-2 jafntefli gegn Skotum í undankeppni EM í gærkvöldi.

Lewandowski hefur skorað tólf mörk í undankeppni EM en hann er þar með einn síns liðs kominn með fleiri mörk í undankeppninni en 29 þjóðir sem taka þar þátt!
David Healy á met yfir flest mörk í einni undankeppni en hann skoraði þrettán mörk í undankeppni EM 2008 fyrir Norður-Írland.
Lewandowski getur jafnað og jafnvel bætt það met á sunnudag þegar Pólverjar mæta Írum í lokaleik sínum í undankeppninni.
Athugasemdir