Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands og formaður Sjálfstæðisflokksins, var að sjálfsögðu mættur á Laugardalsvöll til að sjá Ísland skrá sig á spjöld sögunnar og tryggja sér sæti á HM 2018.
Bjarni er mikill fótboltaáhugamaður og tók sér kærkomið frí frá kosningabaráttunni til að styðja strákana okkar í kvöld. Var hann að vonum hæstánægður í leikslok og kíkti í klefann hjá strákunum til að óska þeim til hamingju.
Birti hann frábæra mynd á Facebook af sér og landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni. Má segja að á þessari mynd sjáist tveir helstu leiðtogar þjóðarinnar.

Athugasemdir