Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 09. október 2017 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: RÚV 
Eiður Smári: Ungur Aron Einar reif kjaft við mig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen er meðal knattspyrnusérfræðinga RÚV fyrir leikinn sem er í gangi gegn Kósóvó.

Eiður Smári og Pétur Marteinsson ræddu um Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliðann, fyrir leikinn.

„Hann hefur vaxið í þetta hlutverk og er bara alvöru fyrirliði. Þetta er drengur sem að ég kynntist þegar hann var 18 ára og var farinn að rífa kjaft við mig," sagði Eiður.

„Ég ber virðingu fyrir þessum dreng. Hann bara óx í þetta starf, tók að sér bandið og er bara fyrirliði."

Leikurinn mikilvægi gegn Kósóvó er í gangi á RÚV og er staðan markalaus eftir hálftíma.
Athugasemdir
banner
banner