Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 09. október 2017 22:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Erlendur blaðamaður: Þetta er besti staður í heimi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikið um erlenda blaðamenn á blaðamannafundi Íslands eftir 2-0 sigur á Kosóvó í kvöld.

Eins og allir kannast við tryggði Ísland sér HM sæti með sigrinum. Við verðum í Rússlandi á næsta ári að etja kappi um heimsmeistaratitilinn.

Blaðamaður frá NBC Sports í Bandaríkjunum var mættur á svæðið ásamt blaðamönnum frá Guardian og sjálfum Stan Collymore.

Blaðamaðurinn frá NBC sagði athyglisverða setningu áður en hann bar upp spurningu fyrir landsliðsþjálfarann og aðstoðarmenn hans.

„Í dag er þetta besti staður í heimi," sagði hann.
Athugasemdir
banner
banner