Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 09. október 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
FIFA tilnefnir mörk ársins - Markvörður á eitt af þeim
Þetta mark Giroud er á lista.
Þetta mark Giroud er á lista.
Mynd: Getty Images
FIFA hefur tilkynnt hvaða þrjú mörk koma til greina í valinu á Puskas verðlaununum, marki ársins.

Oscarine Masuluke, markvörður frá Suður-Afríku, er á listanum fyrir hjólhestaspyrnu sína með Baroka FC gegn Orlando Pirates. Um var að ræða jöfnunarmark á lokasekúndunum.

Masuluke er fyrsti Afríkumaðurinn sem er tilnefndur til Puskas verðlauna og fyrsti markvörðurinn einnig.

Deyna Castellanos, leikmaður U17 ára landsliðs kvenna hjá Venesúela, er á lista eftir magnað skot frá miðju i leik gegn Kamerún á HM.

Olivier Giroud, framherji Arsenal, á einnig eitt af mörkunum en það er sporðdrekaspark hans í leik gegn Crystal Palace á síðasta tímabili.

Smelltu hér til að horfa á mörkin og kjósa
Athugasemdir
banner
banner