Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 09. október 2017 21:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir: Nokkrir sem sögðu mér að „casha út" eftir EM
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá voru nokkrir sem sögðu mér að "casha út" eftir EM," sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarinn, kampakátur eftir 2-0 sigur á Kosóvó í kvöld. Með sigrinum var sæti á HM tryggt.

Næsta sumar, í Rússlandi, mun Ísland spila á HM í fyrsta sinn, en eins og segir hér að ofan þá fékk Heimir ráð um að hætta eftir EM.

Hann gerði það hins vegar ekki. Undir hans stjórn er liðið að fara að spila á heimsmeistaramótinu í fyrsta sinn.

„Ég hafði trú á því að við gætum bætt okkur," sagði Heimir enn fremur á löngum blaðamannafundi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner