mán 09. október 2017 20:46
Magnús Már Einarsson
Pabbi Arons komst ekki á leikinn - Sá um að passa
Icelandair
Aron tekur innkast í leiknum í kvöld.
Aron tekur innkast í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Malmquist Gunnarsson, faðir Arons Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða, var ekki á Laugardalsvellinum þegar Ísland tryggði sér sæti á HM í kvöld.

Ástæðan var sú að Gunnar sá um að passa dótturdóttur sína.

Gunnar er gömul kempa sem hefur fylgt Aroni eftir á ferlinum en í kvöld urðu önnur störf að ganga fyrir.

Fannar Daði, frændi Arons, birti skemmtilega mynd af Gunnari þegar hann var að passa í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner