Páll Sævar Guðjónsson eða Röddin, vallarþulur á Laugardalsvelli til margra ára, segir að leikurinn gegn Kosóvó sé sá stærsti á ferlinum hjá sér.
„Ég er mjög bjartsýnn. Við vinnum 5-0. Ég er búinn að halda við mig þá tölu síðan í leiknum á móti Tyrkjum," sagði Palli við Fótbolta.net í dag.
„Ég hugsa að Heimir Hallgrímsson geti sagt strákunum að fara upp á þak á stúkunni og hoppa niður og þeir myndu gera það."

„Sjálfstraustið í þessum drengjum er alveg ótrúlegt og það verður rosalega gaman að sjá þá mæta til leiks á eftir. Ég er sannfærður um 5-0."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Fótbolti.net er með alla anga úti í umfjöllun um leikinn gegn Kosóvó og hægt er að fylgjast með bak við tjöldin á samskiptamiðlum okkar, þar á meðal Fotboltinet á Snapchat.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu hérna
Staðan? Skoðaðu möguleikana í riðli Íslands
Smelltu hér til að sjá líkegt byrjunarlið
Með því að smella hér má hlusta á ítarlega upphitun fyrir leikinn úr útvarpsþættinum
Verið með okkur á þessum RISA leikdegi með því að nota #fotboltinet kassamerkið á Twitter 🇮🇸🇮🇸🇮🇸 pic.twitter.com/gari9vZKs5
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 9, 2017
Athugasemdir