Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 09. október 2017 19:41
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Gylfi kom Íslandi yfir gegn Kósóvó
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að koma Íslandi yfir gegn Kósóvó í lokaumferð undankeppni HM.

Fyrri hálfleiknum er lokið og var hann ansi rólegur, en frábær rispa frá Gylfa skilaði inn verðmætri forystu fyrir strákana okkar.

Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV og er hægt að sjá markið hér.

Strákarnir geta tryggt sæti á HM í fyrsta sinn í sögu íslenska karlalandsliðsins með sigri í kvöld.

Jafntefli eða tap gæti einnig nægt ef viðureign Úkraínu og Króatíu endar með jafntefli, en það er markalaust í hálfleik í Úkraínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner