mán 09. október 2017 21:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjálfari Kosóvó: Óska öllum Íslendingum til hamingju
Icelandair
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Gott kvöld. Ég ætla að byrja á að óska öllum Íslendingum til hamingju," sagði Albert Bunjaki, landsliðsþjálfari Kosóvó, á blaðamannafundi í Laugardalnum í kvöld.

Kosóvó tapaði 2-0 gegn Íslandi, en með sigrinum tryggði Ísland sér þáttökurétt á HM í fyrsta sinn í sögunni.

„Þessi árangur sýnir að þáttakan á Evrópumótinu í Frakklandi var ekki heppni eða eitthvað álíka."

Hann segir að smáþjóðir, eins og t.d. Kosóvó geti tekið Ísland til fyrirmyndar.

„Þetta er eitthvað sem smáar þjóðir geta notað sem dæmi. Einu sinni enn til hamingju Ísland," sagði hann.

„Ég er stoltur af liðinu mínu eftir þennan leik, frammistaðan var mjög góð þrátt fyrir 2-0 tap."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner