Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. nóvember 2017 19:43
Ívan Guðjón Baldursson
Butland braut fingur - Átti að byrja gegn Þjóðverjum
Mynd: Getty Images
Jack Butland átti að byrja á milli stanganna í æfingalandsleik Englendinga gegn Þjóðverjum annað kvöld.

Butland, sem er aðalmarkvörður Stoke, braut fingur á landsliðsæfingu og missir því einnig af leiknum gegn Brasilíu.

Butland hefði verið að spila sinn sjöunda landsleik fyrir England sem er að undirbúa sig fyrir HM í Rússlandi.

Þjóðverjar kláruðu undankeppnina fyrir HM með fullt hús stiga á meðan Englendingar gerðu tvö jafntefli og unnu átta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner