Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. nóvember 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Jóna Benný tekur við Sindra (Staðfest)
Mynd: Aðsend
Jóna Benný Kristjánsdóttir hefur verið ráðin þjálfari Sindra í 1. deild kvenna.

Þetta staðfesti Kristján Sigurður Guðnason formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net.

Hin 37 ára gamla Jóna Benný hefur spilað með meistaraflokki Sindra með hléum frá árinu 1993.

Í sumar spilaði hún þrjá leiki í 1. deildinni með liðinu og einn leik í Borgunarbikarnum.

Sindri endaði í 7. sæti á nýliðnu tímabili eftir að hafa verið spáð tíunda og neðsta sæti fyrir tímabilið í 1. deild kvenna í spá þjálfara og fyrirliða.

Ingvi Ingólfsson þjálfaði Sindra í sumar en hann lét af störfum eftir tímabilið. Jóna hefur nú tekið við af honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner