Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 09. desember 2014 18:37
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Liverpool og Basel: Fjórar breytingar hjá Liverpool
Steven Gerrard er í byrjunarliðinu.
Steven Gerrard er í byrjunarliðinu.
Mynd: Getty Images
Spennan er mikil fyrir leik Liverpool og Basel, leik sem Liverpool verður að vinna. Brendan Rodgers hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í kvöld.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá Meistaradeildinni

Real Madrid hefur unnið B-riðilinn en Liverpool og Basel mætast í úrslitaleik um að fylgja spænska liðinu áfram. Basel nægir jafntefli á Anfield en leikur hefst 19:45.

Liverpool gerir fjórar breytingar frá markalausu jafntefli gegn Sunderland um liðna helgi. Steven Gerrard, Jose Enrique, Dejan Lovren og Joe Allen koma inn í liðið. Alberto Moreno, Adam Lallana, Philippe Coutinho og Kolo Toure fara út. Toure er meiddur.

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet; Johnson, Lovren, Skrtel, Enrique; Lucas, Allen, Henderson, Gerrard; Sterling, Lambert.

Byrjunarlið Basel: Vaclik; Schar, Suchy, Safari; Zuffi, Xhaka, Frei, Eleny; Gonzalez, Gashi, Streller.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner