Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. desember 2014 20:53
Brynjar Ingi Erluson
Eftirlýstur glæpamaður kallaður Alexis Sanchez í Síle
Alexis Sanchez er eitthvað minna í því að fremja vopnuð rán.
Alexis Sanchez er eitthvað minna í því að fremja vopnuð rán.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez, leikmaður Arsenal á Englandi, er ansi mikið í fjölmiðlum þessa stundina, bæði í einkalífinu sem og fyrir afrek hans á vellinum en nú eru fréttir af öðrum toga í umræðunni.

Kærasta Sanchez hætti með honum á dögunum fyrir að daðra við aðra konu en honum hefur þó að minnsta kosti gengið vel á tímabilinu með Arsenal.

Nú er helst í fréttum í Síle að glæpamaður að nafni, Daniel Jesús Brizuela González, sé efirlýstur fyrir vopnað rán en hann hefur verið handtekinn oftar en 40 sinnum á undanförnum þremur árum.

Þetta væri þó ekki frásögum færandi nema fyrir það að González er kallaður Alexis Sanchez í Síle. Hann gengur yfirleitt um í Barcelona-treyju sem er merkt Sanchez og tölustafnum 9.

Hann er mikill aðdáandi Sanchez en óvíst er hvort sjálfur Sanchez sé aðdáandi González.


Athugasemdir
banner
banner
banner