Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. desember 2014 10:21
Magnús Már Einarsson
Man Utd ekki átt færri markskot í áraraðir
Van Persie sá um mörkin í gær.
Van Persie sá um mörkin í gær.
Mynd: Getty Images
Manchester United lagði Southampton 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Robin van Persie skoraði bæði mörk United í leiknum en liðið skapaði sér fá færi.

Samtals átti Manchester United þrjú skot í öllum leiknum sem er afskaplega sjaldgæft á þeim bænum.

Í raun hefur liðið ekki átt færri skot í leik í ensku úrvalsdeildinni síðan að Opta byrjaði að sjá um slíka tölfræði í ágúst árið 2003.

Manchester United stökk upp í þriðja sæti með sigrinum í gær en liðið fær Liverpool í heimsókn í næsta leik á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner