David Moyes viðurkennir að sínir menn í Real Sociedad hefðu getað tapað stærra en 4-0 þegar liðið mætti Villarreal um helgina.
Þetta var þriðji deildarleikur Sociedad undir stjórn Moyes en áður hafði hann náð í fjögur stig.
Þetta var þriðji deildarleikur Sociedad undir stjórn Moyes en áður hafði hann náð í fjögur stig.
„Þetta hefði getað verið stærra. Við hefðum getað fengið fleiri mörk á okkur," segir Skotinn en auk þeirra fjögurra marka sem Villarreal skoraði átti liðið tvívegis stangarskot.
„Við gerðum hrikaleg mistök, slæm mistök varnarlega, sérstaklega í þriðja og fjórða markinu."
Real Sociedad náði aðeins tveimur skotum á markið í leiknum en liðið féll niður í fjórtánda sæti spænsku deildarinnar, er þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir