Lazar Markovic, leikmaður Liverpool á Englandi, var rétt í þessu rekinn af velli með rautt spjald, einungis fimmtán mínútum eftir að hann kom inná.
Liverpool er 0-1 undir gegn Basel í Meistaradeild Evrópu en Markovic kom inná sem varamaður í hálfleik.
Hann var búinn að vera nokkuð öflugur í byrjun síðari hálfleik en fékk að líta beint rautt fyrir að slá til Behrang Safari í liði Basel.
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan en er þetta beint rautt spjald?
Athugasemdir