Mörg ensk félög halda jólapartý sín þessa dagana áður en þétt leikjadagskrá tekur við yfir hátíðarnar.
Oftar en ekki berast fréttir af einhverjum vandræðum í þessum partýum og ensk götublöð greina frá því í dag að leikmenn QPR og Crystal Palace hafi farið að slást í partýi um helgina.
Oftar en ekki berast fréttir af einhverjum vandræðum í þessum partýum og ensk götublöð greina frá því í dag að leikmenn QPR og Crystal Palace hafi farið að slást í partýi um helgina.
Bæði lið héldu jólapartý sín á sunnudaginn og á endanum voru leikmenn beggja liða mættir á sama pub í London.
Steven Caulker, varnarmaður QPR, fór á sjúkrahús eftir að hafa fengið gat á höfuðið en ensk blöð segja það hafa verið eftir slagsmál. Þá er því bætt við að Joey Barton hafi átt þátt í að stöðva slagsmálin sem er nýstárlegt.
QPR hefur reynt að blása á þessar sögusagnir en forráðamenn félagsins segja að Caulker hafi dottið og þannig fengið gat á höfuðið.
Athugasemdir