Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. desember 2014 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Wenger um markið: Fannst þetta ekki besta hugmyndin
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal á Englandi, var auðvitað ánægður með sína menn er liðið vann Galatasaray með fjórum mörkum gegn einu í Meistaradeild Evrópu í kvöld en Arsenal hafnaði í öðru sæti riðilsins.

Lukas Podolski kom liðinu yfir áður en Aaron Ramsey bætti við öðru marki. Ramsey bauð svo upp á sleggju í þriðja markinu en hann lét þá vaða með vinstri af 35 metrunum og kom markvörður Galatasaray engum vörnum við.

Wenger var ánægður með liðið og fagnar því að vera kominn áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

,,Þegar Ramsey tók skotið þá fannst mér þetta ekki vera besta hugmyndin en hvernig hann skaut, boltinn flaug bara i netið," sagði Wenger.

;,Mörkin sem er að skora tengjast frammistöðu hans beint í augnablikinu og það hjálpar auðvitað sjálfstraustinu hans að skora svona mörk," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner