Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. desember 2017 14:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnautovic: Vil ekki að þetta verði mitt síðasta mark
Mynd: Getty Images
Austurríkismaðurinn Marko Arnautovic var glaður í bragði er hann var tekinn tali eftir 1-0 sigur West Ham á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arnautovic var keyptur fyrir metfé frá Stoke í sumar og hefur þurft að sæta mikilli gagnrýni.

Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið og hann ætlar ekki að láta þetta verða sitt síðasta.

„Ég get ekki útskýrt tilfinningar mínar, þetta var stórkostlegt. Það sem leikmennirnir gerðu var stórkostlegt og við áttum stigin þrjú skilið. Ég vil ekki að þetta verði mitt síðasta mark fyrir félagið, ég vil gleðja félagið," sagði Arnautovic.

„Við höfum lagt mikla vinnu á okkur síðustu vikurnar en við höfum ekki alltaf verið heppnir. Núna fáum við sjálftraust aftur og verðum að fara að líta upp töfluna."
Athugasemdir
banner