Slavia Sofia 1 - 1 Levski Sofia
0-1 Sergiu Bus ('17)
1-1 Andrea Hristov ('82)
0-1 Sergiu Bus ('17)
1-1 Andrea Hristov ('82)
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar í Levski Sofia sóttu Slavia Sofia heim í nágrannaslag í Búlgaríu í dag.
Hólmar Örn var í byrjunarliði Levski og lék allan leikinn.
Levski komst yfir á 17. mínútu og var með forystuna alveg fram á 82. mínútu þegar Slavia tókst að jafna með marki Andrea Hristov.
Levski hefur ekki tapað í sex deildarleikjum í röð en samt sem áður er liðið aðeins í þriðja sæti. Liðið hefur 39 stig og er sex stigum frá toppliði Ludogorets, sem á leik til góða.
Athugasemdir