Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 09. desember 2017 19:12
Kristófer Jónsson
Chelsea á eftir ungum Jamaíkamanni
Mynd: Getty Images
Englandsmeistararnir í Chelsea skoða nú hinn unga Jamaíkamann Leon Bailey, en hann spilar með Bayern Leverkusen.

Leon Bailey, sem er tvítugur kantmaður, hefur verið flottur á sínu fyrsta tímabili hjá Leverkusen eftir að hann kom til félagsins frá Genk í sumar.

Þessi ungi strákur hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnu fjögur. Þetta hefur vakið athygli Englandsmeistara en njósnarar frá félaginu voru mættir á leik Leverkusen og Stuttgart í gærkvöldi.

Athyglisvert verður að fygljast með hvað muni gerast í þessum málum en Bailey hefur einnig fangað auga Liverpool og Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner