Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 22:40
Kristófer Jónsson
Eiður Smári lenti í árás í Barcelona
Eiður Smári ásant Lionel Messi
Eiður Smári ásant Lionel Messi
Mynd: Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen, einn allra besti fótboltamaður sem að Ísland hefur átt, lenti í miður skemmtilegu atviki í gærkvöldi í Barcelona þegar fimm menn reyndu að ræna úrinu hans.

Eiður Smári, sem gerði garðinn frægan með stórliðum á borð við Chelsea og Barcelona, segir frá atvikinu á Twitter reikningi sínum fyrr í kvöld.

„Fimm náungar stukku á mig í Barcelona í gærkvöldi og reyndu að ræna úrinu mínu. Ef þeir vildu vita hvað klukkan væri hefðu þeir bara átt að spyrja." segir Eiður í færslu sinni í kvöld en eins og sést hefur hann greinilega húmor fyrir atvikinu.

Eiður Smári er markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi en hann lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári. Twitter færslu Eiðs má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner