Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. desember 2017 05:55
Ingólfur Stefánsson
England í dag - Lundúnarslagur í hádeginu
Hazard og félagar mæta West Ham
Hazard og félagar mæta West Ham
Mynd: Getty Images
Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Veislan hefst á Lundúnaslag West Ham United og Chelsea í hádeginu. Chelsea sem hefur verið á miklu skriði þarf á þremur stigum að halda til þess að halda í við Manchester liðin sem mætast á morgun.

West Ham var nálægt því að ná stigum af toppliði Manchester City um síðustu helgi en David Silva skoraði sigurmark City undir lok leiksins. West Ham er einu stigi frá Swansea City á botni deildarinnar.

Fimm leikir hefjast svo klukkan 15:00. Tottenham menn fá Stoke í heimsókn. Slæmt gengi Tottenham í ensku deildinni undanfarið þýðir að liðið er 18 stigum frá toppliði Manchester City. Liðið hefur ekki unnið leik í deildinni síðan gegn Crystal Palace í upphafi nóvember.

Jóhann Berg og félagar í Burnley taka á móti Watford en þessi tvö lið hafa komið hvað mest á óvart í deildinni í vetur og sitja í 7. og 8. sæti. Þá mætast nýliðaliðin Huddersfield og Brighton í leit að sínum fyrsta sigri síðan 4. nóvember.

Leicester heimsækir Newcastle í lokaleik dagsins. Leicester vann góðan sigur á Burnley um síðustu helgi á meðan Newcastle tapaði fyrir Englandsmeisturum Chelsea.

Leikir dagsins:
12:30 West Ham - Chelsea (Stöð 2 Sport)
15:00 Tottenham - Stoke
15:00 Burnley - Watford
15:00 Crystal Palace - Bournemouth
15:00 Huddersfield - Brighton
15:00 Swansea - West Brom
17:30 Newcastle - Leicester (Stöð 2 Sport)

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner