Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 09. desember 2017 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir Guðjóns gestur á X977 í dag
Heimir mætir í útvarpsþáttinn.
Heimir mætir í útvarpsþáttinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður líf og fjör eins og vanalega í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag, laugardag milli 12 og 14.

Heimir Guðjónsson mætir í þáttinn og mun spjalla við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson.

Rætt verður við Heimi um blómlega tíma hjá FH og komandi verkefni í Færeyjum, en hann tók á dögunum við færeyska liðinu HB.

Á sunnudaginn er svokallaður „ofursunnudagur" en tveir nágrannaslagir verða. Manchester United og Manchester City mætast annars vegar og Gylfi Sigurðsson og félagar í Everton mæta nágrönnum sínum í Liverpool hins vegar.

Upphitun verður fyrir þessa leiki í útvarpinu á morgun.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner