Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 09. desember 2017 17:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Örfáir með fleiri stoðsendingar en Jóhann Berg
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp enn eitt markið þegar Burnley lagði Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Það var aðeins eitt mark skorað og það gerði Scott Arfield eftir undirbúning frá Jóhanni Berg.

Jóhann Berg hefur verið ansi duglegur að leggja upp en hann á núna fimm stoðsendingar með sínu nafni.

Aðeins fjórir leikmenn hafa lagt upp fleiri mörk en Jói Berg, en það eru Kevin de Bruyne, David Silva og Leroy Sane, leikmenn Manchester City, og Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal.

Burnley hefur komið liða mest á óvart er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 28 stig.



Athugasemdir
banner
banner
banner