Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. janúar 2014 13:24
Elvar Geir Magnússon
Milos Glogovac í Ægi (Staðfest)
Glogovac var fyrirliði KF.
Glogovac var fyrirliði KF.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn reyndi Milos Glogovac er genginn í raðir Ægis í Þorlákshöfn.

Ægismenn leika í 2. deild karla en þeir höfnuðu í 10. sæti síðasta sumar.

Milos verður 34 ára á árinu og kemur frá KF sem féll úr 1. deildinni í fyrra. Hann hefur leikið fyrir KF síðan 2011 og var valinn í lið ársins í 2. deild 2012.

Hann hefur leikið á Íslandi síðan 2005 þegar hann var með Víkingi Reykjavík en hann lék meðal annars með liðinu í efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner