Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 10. janúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Arfield eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Scott Arfield, kantmaður Burnley, er eftirsóttur en Brighton, Crystal Palace og West Ham eru öll á eftir honum.

Þessi 29 ára gamli Kanadamaður verður samningslaus í sumar og þá getur hann farið frítt frá Burnley.

Burnley hefur boðið Arfield nýjan samning en hann hefur ekki viljað skrifa undir.

David Moyes, stjóri West Ham, er mikill aðdáandi Arfield en hann reyndi að fá leikmanninn til Sunderland á sínum tíma.

Arfield gæti því skipt um félag í sumar eða Burnley gæti ákveðið að selja hann í þessum mánuði til að missa hann ekki frítt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner