Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. janúar 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Coleman nálgast endurkomu eftir tíu mánaða fjarveru
Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Seamus Coleman hefur hafið æfingar á nýju með Everton, tíu mánuðum eftir að hann fótbrotnaði í landsleik með Írum.

Coleman fótbrotnaði á hræðilegan hátt eftir tæklingu frá Neil Taylor í leik gegn Wales í mars í fyrra.

„Seamus Coleman fer að koam til baka. Hann er byrjaður að æfa," sagði Sam Allardyce, stjóri Everton.

Hinn 29 ára gamli Coleman á yfir 200 leiki að baki með Everton en hans hefur verið sárt saknað á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner