Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 10. janúar 2018 22:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Chelsea og Arsenal: Chambers bestur
Chambers fylgist hér vel með Eden Hazard.
Chambers fylgist hér vel með Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Sky Sports útnefndi Calum Chambers, mann leiksins úr viðureign Arsenal og Chelsea í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Chambers þótti sinna varnarvinnu sinni vel, en leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Ainsley Maitland-Niles, Alex Iwobi og Alexandre Lacazette, liðsfélagar Chambers, þóttu ekki eiga eins góðan leik.

Hjá Chelsea fá nokkrir 7, rétt eins og Chambers.

Chelsea: Courtois (6), Azpilicueta (7), Christensen (7), Rudiger (7), Moses (6), Kante (6), Fabregas (7), Drinkwater (6), Alonso (6), Hazard (7), Morata (6)

Enginn af varamönnum Chelsea spilaði nægilega mikið til að verðskulda einkunn.

Arsenal: Ospina (7), Bellerin (6), Chambers (7), Mustafi (7), Holding (7), Maitland-Niles (5), Wilshere (7), Xhaka (6), Iwobi (5), Welbeck (6), Lacazette (5)

Enginn af varamönnum Arsenal spilaði nægilega mikið til að verðskulda einkunn.

Maður leiksins: Calum Chambers.
Athugasemdir
banner
banner
banner