Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. janúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Manchester United hefur áhuga á Lucas Moura
Lucas Moura.
Lucas Moura.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur áhuga á Lucas Moura kantmanni Paris Saint-Germain en Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Moura hefur ekki verið í byrjunarliði í neinum leik hjá PSG á tímabilinu.

Sky segir að PSG sé tilbúið að selja Moura en hann er löglegur í Meistaradeildinni með öðru félagi eftir áramót þar sem hann hefur ekkert spilað í keppninni í vetur.

Manchester United hefur ekki ennþá lagt fram tilboð í Moura en félagið gæti látið til skarar skríða í þessum mánuði.

Síðastliðið sumar hafði United áhuga á Ivan Perisic kantmanni Inter en ekkert varð af þeim skiptum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner