Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. janúar 2018 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Richarlison: Coutinho er framtíð Brasilíu
Coutinho fékk draumaskipti sín til Barcelona.
Coutinho fékk draumaskipti sín til Barcelona.
Mynd: Getty Images
„Ég tel að hann sé frábær karakter og frábær leikmaður. Hann er framtíð Brasilíu," segir Richarlison, leikmaður Watford, um landa sinn Philippe Coutinho.

Coutinho samdi við Barcelona um helgina eftir, en Börsungar höfðu verið á eftir honum í langan tíma.

Kaupverðið á Coutinho er í kringum 145 milljónir punda sem gerir hann að næst dýrasta fótboltamanni sögunnar. Aðeins Neymar er dýrari en Coutinho.

Richarlison (20), sem er með sama umboðsmann og Coutinho, telur að Coutinho muni slá í gegn á Spáni.

„Hann er ótrúlegur og ég óska honum alls hins besta hjá Barcelona."

Richarlison hefur heillað frá því hann gekk í raðir Watford í sumar. Hann kom frá Fluminense og var óþekkt stærð áður en hann mætti í enska boltann. Ef hann heldur áfram að spila eins og hann hefur verið að gera er aldrei að vita nema hann komist á svipaðan stall og Coutinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner