Fotbolti.net
10.02.14 - 14:39
Magnús Már Einarsson

Leikmaður Fulham líkir leikstíl Man Utd við utandeildina

Leikmaður Fulham líkir leikstíl Man Utd við utandeildina
Canon

Mynd: Getty Images

Dan Burn, varnarmaður Fulham, segir að leikstíll að Manchester United í leik liðanna í gær hafi minnt hann á leikstíl liða í utandeildinni á Englandi.

Manchester United dældi fyrirgjöfum inn á teiginn í 2-2 jafnteflinu gegn Fulham í gær. Alls átti Manchester United 81 fyrirgjöf sem er met í ensku úrvalsdeildinni.

Leikmenn Fulham stóðu vaktina hins vegar vel en hinn 21 árs gamli Burn hreinsaði boltann meðal annars 22 sinnum burt.
,,Ég hef aldrei skallað svona marga bolta í leik síðan í utandeildinni. Við vissum að þetta myndi gerast og ég var ánægður með að þeir spiluðu svona,\" sagði Burn sem lék með Darlington í utandeildinni árið 2011.

,,Ég er tveir metrar og það hjálpar við að eiga við svona bolta. Manchester United er með ótrúlega leikmenn og öðrum degi hefðu þeir getað skorað oftar en við vörðumst virkilega vel.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.