Adam Johnson, leikmaður Sunderland, hefur játað sök í einum ákæruþætti af þremur í kynferðisbroti gegn stelpu sem var undir lögaldri, yngri en 16 ára.
Þessi 28 ára fótboltamaður á 12 landsleiki fyrir England en hann var handtekinn í mars 2015.
Þessi 28 ára fótboltamaður á 12 landsleiki fyrir England en hann var handtekinn í mars 2015.
Samkvæmt kærunni tældi hann stelpuna í gegnum internetið, meðvitaður um aldur hennar. Hann viðurkennir að hafa kysst hana og snert á kynferðislegan hátt þegar þau hittust.
Hann neitar sök í hinum tveimur ákæruliðunum.
Eftir handtökuna setti Sunderland hann í tímabundið leyfi frá störfum en hann fékk svo að snúa aftur í leikmannahópinn.
Athugasemdir