Heimsmeistarinn Benedikt Höwedes hefur gert nýjan fjögurra ára samning við þýska úrvalsdeildarliðið Schalke.
Þessi 27 ára gamli varnarmaður var einn þriggja sem lék allar mínútur þýska landsliðsins þegar liðið vann HM í Brasilíu árið 2014.
Höwedes hefur leikið allan sinn feril með Schalke eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf félagsins en hann á tæplega 300 leiki að baki fyrir aðallið Schalke.
Schalke situr í 4.sæti þýsku Bundesligunnar og mætir Shakhtar Donetsk í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í lok mánaðarins.
Athugasemdir