Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. febrúar 2016 13:01
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn búinn að jafna sig - Kominn aftur í hópinn
Kolbeinn er í hóp í kvöld.
Kolbeinn er í hóp í kvöld.
Mynd: Getty Images
Kolbeinn Sigþórsson er kominn aftur í leikmannahóp Nantes en hann hefur ekki getað tekið þátt í síðustu tveimur leikjum vegna magakveisu.

Hann gat ekki spilað í 3-1 sigri gegn Gazélec Ajaccio fyrir viku og var heldur ekki með í markalausum leik gegn Toulouse.

Nan­tes er í 7. sæti frönsku deild­ar­inn­ar en á leik gegn Bordeaux í bikarkeppninni í kvöld klukkan 18 að íslenskum tíma.

Kolbeinn er í leikmannahópnum og mun íslenski sóknarmaðurinn vonandi reima á sig markaskóna.
Athugasemdir
banner
banner