Terrance William Dieterich verður áfram í marki Hauka í sumar en þetta staðfesti Luka Kostic þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
William varði mark Hauka í fyrra eftir að hafa spilað með Tindastóli árið áður.
Í vetur leit út fyrir að William myndi ekki koma aftur til Hauka en nú er ljóst að hann leikur með liðinu í sumar.
William varði mark Hauka í fyrra eftir að hafa spilað með Tindastóli árið áður.
Í vetur leit út fyrir að William myndi ekki koma aftur til Hauka en nú er ljóst að hann leikur með liðinu í sumar.
Haukar enduðu í 6. sæti í 1. deildinni í fyrra en liðið var að mestu leyti byggt upp á ungum heimamönnum.
Haukar hefja leik í Lengjubikarnum á sunnudag en liðið leikur þá við KR.
Athugasemdir