Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 10. mars 2015 10:48
Magnús Már Einarsson
Ingó í KFS (Staðfest)
Ingó Veðurguð ætlar að spila í Eyjum í sumar.
Ingó Veðurguð ætlar að spila í Eyjum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Ingólfur Þórarinsson hefur gengið til liðs við KFS í Vestmannaeyjum.

Ingólfur var síðastliðið sumar spilandi þjálfari hjá Hamri í Hveragerði í 3. deildinni.

Ingólfur er uppalinn á Selfossi en hann fór meðal annars með liðinu upp úr 2. deild í Pepsi-deildina á sínum tíma. Þá hefur Ingólfur einnig leikið með Víkingi R. og Fram á ferli sínum.

KFS mun leika í 3. deildinni í sumar en liðið komst óvænt upp síðastliðið haust þegar Grundarfjörður ákvað að draga sig úr keppni.

Tryggvi Guðmundsson, markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi, spilaði með liðinu í fyrrasumar en hann stefnir á að leika áfram í 3. deildinni í sumar þegar starf hans sem aðstoðarþjálfari ÍBV leyfir.
Athugasemdir
banner
banner
banner