Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. mars 2018 21:16
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Chelsea og Crystal Palace: Willian bestur
Mynd: Getty Images
Chelsea hafði betur gegn Crystal Palace í Lundúnaslag fyrr í kvöld en leikurinn var lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Niðurstaðan var 2-1 sigur þeirra bláu Willian skoraði fyrra markið þeirra og það seinna var sjálfsmark frá Martin Kelly. Van Aanholt skoraði mark gestanna undir lok leiks.

Það kemur líklega ekki mikið á óvart en Willian var valinn maður leiksins hjá Sky Sports.

Tomkins og Zaha fengu sjö í einkunn en það eru hæstu einkunnir Crystal Palace í leiknum.

Einkunnir Chelsea: Courtois (6), Christensen (6), Cahill (6), Azpilicueta (7), Zappacosta (7), Kante (7), Fabregas (7), Alonso (7), Willian (8), Giroud (6), Hazard (7).

Varamenn: Morata (6).

Einkunnir Crystal Palace: Hennessey (6), Wan-Bissaka (6), Tomkins (7), Kelly (5), van Aanholt (6), Townsend (6), Milivojevic (5), McArthur (6), Schlupp (5), Benteke (6), Sorloth (6).

Varamenn: Zaha (7), Reidewald (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner