Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 10. mars 2018 21:04
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lengjubikarinn: Magni kláraði Þrótt undir lok leiksins
Magni sigraði Þrótt R. í Boganum.
Magni sigraði Þrótt R. í Boganum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni 3-1 Þróttur R.
1-0 Gunnar Örvar Stefánsson ('12)
1-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('65)
2-1 Þorgeir Ingvarsson ('87)
3-1 Bergvin Jóhannsson ('90)
Rautt spjald: Hlynur Hauksson ('75)

Magni og Þróttur R. mættust í lokaleik dagsins í A-deild Lengjubikarsins, en þeim leik er ný lokið.

Eina mark fyrri hálfleiks skoraði Gunnar Örvar Stefánsson en það kom á 12. mínútu.

Í síðari hálfleik komu hins vegar fleiri mörk, Ólafur Hrannar Kristjánsson jafnaði metin á 65. mínútu og staðan orðin 1-1.

Á 75. mínútu fékk Hlynur Hauksson rautt spjald, þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma komst Magni yfir en þar var að verki Þorgeir Ingvarsson.

Lokamark leiksins og þriðja mark Magna skoraði Bergvin Jóhannsson á 90. mínútu, niðurstaðan 3-1 sigur Magna á Þrótti R.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner